Alþjóðlegur baráttudagur kvenna: STEMming 2026
/
Fjölbreytileiki og nýsköpun í forgrunni á STEMming 2026
Þann 8. mars ár hvert heldur WomenTechIceland upp á alþjóðlegan baráttudag kvenna með viðburðinum STEMming. Um er að ræða viðburð sem sameinar konur, kynsegin einstaklinga og bandamenn sem vilja efla fjölbreytileika í STEM-greinum og nýsköpun.
EDIH-IS hefur stutt við viðburðinn undanfarin ár og er þetta viðburður sem við bíðum með mikilli eftirvæntingu.
Þemað í ár, give to gain, gaf viðburðinum skemmtilegan vinkil. Þátttakendur skrifuðu á nafnspjöld sín hvað þeir höfðu fram að færa fyrir aðra þátttakendur og hvað þeir vonuðust til að fá út úr viðburðinum, sem var einföld en áhrifarík leið til að brjóta ísinn og koma samtölum af stað.
Kærar þakkir til WomenTechIceland og allra samstarfsaðila sem komu að viðburðinum. Við erum stolt af því að vera hluti af þessu og hlökkum nú þegar til næsta árs!










