Námskeið í gerð styrkumsókna

/

Námskeið í gerð styrkumsókna fyrir rannsókna og nýsköpunaráætlun ESB, Horizon Europe og Evrópska rannsóknaráðið (ERC)

Þann 28. 29. og 30. október nk. standa Rannís og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH) á Íslandi í samstarfi við Enterprise Europe Network (EEN) á Íslandi og Félag sérfræðinga í rannsóknaþjónustu (ICEARMA) fyrir námskeiði um hvernig á að undirbúa og skrifa umsókn í Horizon Europe og ERC. 

Námskeiðið er ætlað umsækjendum, verkefnastjórum og/eða rannsóknastjórum sem hafa áhuga á að bæta færni sína í að skrifa samkeppnishæfa umsókn í rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB og Evrópska rannsóknaráðið. Einnig þeim sem hafa aðkomu að undirbúningi Horizon Europe verkefna. 

Leiðbeinandi: Jitka Eryilmazova, Ph.D. 
Jitka er forstöðumaður Horizon Europe Pre-Awards Services hjá EFMC (European Fund Management Consulting) og býr yfir áralangri reynslu sem yfirmatsmaður Horizon umsókna. Jitka hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir nám og störf og á að baki meira en 18 ára reynslu úr atvinnulífinu sem og fræðasamfélaginu. 
Jitka er með doktorsgráðu í byggingarlíffræði frá Birkbeck College, Háskólanum í London. 

Námskeiðið fer fram á ensku. 


Tími: 28. 29. og 30. október, 10:00 – 17:00 alla dagana 
Staður: Hannesarholt 


Námskeiðið er tvískipt og miðast gjaldið eftir því. Í boði er annars vegar tveggja daga námskeið þar sem farið er almenn umsóknarskrif fyrir Horizon Europe umsóknir. Síðasti dagurinn er hins vegar tileinkaður þeim sem undirbúa umsóknir fyrir Evrópska rannsóknaráðið (ERC). 
Það er velkomið að sitja allt námskeiðið og vera þrjá daga. 

Námskeiðsgjald: 
Almenn umsóknarskrif fyrir Horizon Europe, 28. og 29. okt. (2 dagar): 40.000 kr. 
ERC umsóknarskrif, 30. okt. (1 dagur): 20.000 kr. 
Allt námskeiðið. Almenn umsóknarskrif og ERC umsóknarskrif, 28. 29. og 30. okt. (3 dagar): 50.000 kr. 
Innifalið: námskeiðsgögn, hádegismatur og kaffiveitingar. 

Hámarksfjöldi þátttakenda er 45. 


Félag sérfræðinga í rannsóknaþjónustu (ICEARMA) mun niðurgreiða námskeiðið fyrir félagsmenn um 10.000 kr. 


Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Rannís.


Skráning


IN OTHER NEWS

26. nóvember 2025
EDIH-IS and Enterprise Europe Network Iceland are hosting a master class in collaboration with Gate2Growth on December 2–3 at Hannesarholt, Grundarstígur 1.
30. október 2025
A major step has been taken to strengthen Iceland’s artificial intelligence infrastructure through a new ISK 1.4 billion collaborative project led by Almannarómur in partnership with the University of Iceland, Reykjavík University, University of Iceland Science Park, the Icelandic Meteorological Office, and the Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies. A national center for artificial intelligence and high-performance computing (HPC) will be established in Iceland, providing access to computing power, AI software, datasets, and expert consultation for the development, training, and testing of new AI solutions. EDIH-IS celebrates this milestone, which aligns with our mission to accelerate digital transformation and support companies and public institutions in adopting cutting-edge technologies. Read more about the project on the University of Iceland website: 👉 Major collaborative project strengthens Iceland’s AI infrastructure
15. október 2025
Join us for this exciting fundraising event hosted by Women Tech Iceland
SEE MORE