Ráðstefna um íslenska gagnavistkerfið

/

Hagstofa Íslands í samstarfi við háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar efnir til ráðstefnu um þróun íslenska gagnavistkerfisins.

TAKIÐ DAGINN FRÁ!


  • Dagur: 27. nóvember 2024
  • Staður: Gróska, Bjargargata 1, 102 Reykjavik
  • Viðfangsefni: Kynning á Gagnastefnu Íslands X Þróun íslenska gagnavistkerfisins
  • Skráning: Ókeypis - hér

 

Gríðarleg tækifæri til verðmætasköpunar liggja í bættu aðgengi að gögnum og nýtingu þeirra.

Í því samhengi hafa verið gerðar breytingar á lögum sem kveða á um opið aðgengi að virðisaukandi gögnum íslenska ríkisins auk þess sem unnið er að íslenskri gagnastefnu sem hefur það að markmiði að skapa sameiginlega sýn sem styður við gagnadrifna verðmætasköpun á Íslandi. 

 

Meginþema GAGNVIST er að leiða saman haghafa innan íslenska gagnavistkerfisins, sérstaklega þá sem safna og miðla virðisaukandi gögnum og notendur þessara gagna, bæði opinbera aðila og fyrirtæki.

 

Í tengslum við ráðstefnuna verður haldið gagnaþon þar sem keppt verður um bestu hugmyndina að gagnadrifinni Borgarlínu byggða á samþættingu virðisaukandi gagna.


Gagnaþonið fer fram dagana 23. - 24.nóvember og verða úrslit þess kynnt á málþinginu 27. nóvember.


DAGSKRÁ

Nánari upplýsingar um einstaka hluta ráðstefnunnar koma síðar.

 

Opnun

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Kynning á drögum Gagnastefnu Íslands og framtíðarsýn.

 

Tilgangur og þarfir notenda

Af hverju viljum við bætt aðgengi að gögnum? Hvað þurfa þeir sem vinna með gögn? Hvaða stuðningur er í boði?

 

Uppbygging gagnainnviða

Hvað þarf til þess að aðgengi að gögnum sé betra? Hvaða uppbyggingarverkefni eru í gangi? Umfjöllun um tæknilega innviði og getu, auk sameiginleg tæknileg lágmarksviðmið.

 

Gagnadrifin verðmætasköpun

Góð dæmi um gagnadrifna verðmætasköpun. Hvernig skilar samþætting gagna verðmætum? Úrslit gagnaþons.

IN OTHER NEWS

8. desember 2025
Conference on the Development of the Icelandic Data Ecosystem
8. desember 2025
EDIH Iceland invites women who work with, or are interested in, artificial intelligence and digital technologies to join the first preparatory meeting of the Women in AI working group.
26. nóvember 2025
EDIH-IS and Enterprise Europe Network Iceland are hosting a master class in collaboration with Gate2Growth on December 2–3 at Hannesarholt, Grundarstígur 1.
SEE MORE